Ég var í bíó áðan með Jóa bró og fór ég á
Night at the Museum. Var ekki viss
hvort þetta væri góð mynd og hélt ég að þetta væri algjör
baranamynd, en annað kom á daginn og hló ég oft og
hátt.
Það sem var slæmt við myndina var að
Selfossbíó að kenna, myndin hafði e-ð runnið til og sást bara
helmingurinn af myndinni. Maður hefði haldið að einhver væri að
fylgjast með þessu og því kippt í lag strax. En nei, ekkert
gerðist, ekki fyrr en einhver fór fram til að kvarta. Þá var
gaurinn sem átti að sjá um þetta í allt öðrum heimi og bara
að hlutandi á tónlist. Pirrandi þegar maður er að borga 900 kr í
bíó og þeir geti ekki haft svona hluti á hreinu.
Síðan eitt fyndið við myndina var að í
einni tökunni sást "mækinn", sem var mjög fyndind og sprungu allir
úr hlátri. Þeir sem ætla að sjá þessa mynd eiga eflaust eftir að
taka eftir þessu, mjög áberandi.
Eitt enn, þegar ég var að horfa á myndi
komst ég ekki hjá því að sjá hvað Ben Stiller er líkur meðleigjanda
mínu, Stebba. Er þetta vitleysa í mér eða?

Ben
Stiller?
Stebbi?
þetta er orðið gott í bili.
annars væri gaman að sjá hverjir það eru sem eru
ennþá að skoða þessa síðu